Handbolti: Kemst KA/Þór í Höllina?

Átta liða úrslit Powerade-bikarkeppni kvenna í handbolta fara fram í kvöld og annað kvöld. KA/Þór á útileik gegn Selfyssingum.

Þrír leikir fara fram í átta liða úrslitunum í kvöld og einn á morgun. Það er til mikils að vinna fyrir KA/Þór og væri fagnaðarefni að komast í undanúrslit og í Laugardalshöllina í byrjun mars, ekki síst þegar tekið er mið af erfiðri stöðu í Olísdeildinni. KA/Þór mætti Berserkjum í 16 liða úrslitum keppninnar og vann auðveldlega, 36-7.

Leikur Selfoss og KA/Þórs hefst kl. 18 og verður sýndur beint í Sjónvarpinu, RÚV2.

  • Mót: Powerade-bikar kvenna
  • Leikur: Selfoss - KA/Þór
  • Staður: Selfoss
  • Dagur: Þriðjudagur 6. febrúar
  • Tími: 18:00
  • Ústending: RÚV2 kl. 17:50