Handbolti: Þórsarar mæta ungmennaliði HK í Höllinni

Þórsarar taka á móti ungmennaliði HK í Grill 66 deild karla í handbolta í dag kl. 16.

Þórsarar eru áfram í toppbaráttunni þó liðið hafi misst 2. sætið í hendur ÍR-inga eftir síðasta leik, en liðin eru jöfn að stigum í 2.-3. sætinu með 16 stig. ÍR-ingar hafa leikið 11 leiki, en Þórsarar 12. Ungmennalið HK er við hinn enda töflunnar, en liðið situr í næstneðsta sætinu með fimm stig úr 11 leikjum.

Liðin mættust í Kórnum í Kópavogi um miðjan október og höfðu okkar menn þá eins marks sigur, 27-28. 

Allir leikir í Grill 66 deildinni eru sýndir beint á handboltarásum Sjónvarps Símans.

  • Mót: Grill 66 deild karla
  • Leikur: Þór - HK-U
  • Staður: Íþróttahöllin á Akureyri
  • Dagur: Laugardagur 3. febrúar
  • Tími: 16:00