Handbolti: Toppslagur í Höllinni í dag

Þórsarar taka á móti ÍR-ingum í Grill 66 deild karla í handbolta í Höllinni í dag kl. 16. Mikilvæg stig í boði í baráttunni um Olísdeildarsæti. 

ÍR-ingar höfðu betur í viðureign liðanna í fyrri umferðinni þegar þau mættust í Skógarselinu í nóvember, unnu með 12 marka mun, 34-22. Liðin eru jöfn að stigum fyrir leikinn í dag, en ÍR-ingar eiga leik til góða á Þórsara. Bæði lið eru með 18 stig. Þórsarar eiga fjóra leiki eftir í deildarkeppninni, en ÍR-ingar fimm. Fjölnir er með einu stigi meira og því spennandi lokasprettur fram undan í deildinni.

Næst

  • Mót: Grill 66 deild karla
  • Leikur: Þór - ÍR
  • Staður: Íþróttahöllin á Akureyri
  • Dagur: Laugardagur 24. febrúar
  • Tími: 16:00
  • Útsending: Handboltarás Sjónvarps Símans