Knattspyrna: Úrslitaleikur Kjarnafæðimótsins í dag

Þórsarar mæta KA á Greifavellinum kl. 17:30 í dag í úrslitaleik A-deildar karla í Kjarnafæðimótinu. 

Að venju hefur Knattspyrnudómarafélag Norðurlands valið málefni til að styrkja og rennur allur ágóði af leiknum til Alzheimersamtakanna á Akureyri. Aðgangur kostar 1.000 krónur, en frítt fyrir 12 ára og yngri. 

Leikurinn verður sýndur beint í gegnum streymi sem nálgast má með því að smella hér.

Bæði lið fóru í gegnum riðlakeppnina með fullt hús stiga, unnu alla fjóra leiki sína í riðlinum. Þór kláraði sína leiki með 20 mörk í plús, en KA með 19 í plús. 

Kjarnafæðimótið