Fyrirtækjamót Slippfélagsins og píludeildarinnar hefst í kvöld

Fyrirtækjamótið Slippfélagsins og píludeildar Þórs hefst í kvöld með leikjum í A, B, C og D-riðlum.
 
Alls eru 33 lið skráð til leiks og er þeim skipt í átta riðla. Keppni hefst í kvöld í fjórum riðlum. Húsið verður opnað kl. 19 og hefjast leikar kl. 20.
 
Nokkrar reglur sem píludeildin hefur gefið út:
  • Að lágmarki þrír keppendur frá hverju fyrirtæki verða að mæta á kvöldi.
  • Ef fyrirtæki mætir ekki til leiks án þess að láta vita af seinkun eða biðja um frestun fyrir kl. 16 á fimmtudegi tapast leikurinn.
  • Í öllum leikjum verður spilað best af þremur nema í lokaleggnum sem er best af sjö (501 einmenningur)
  • Mögulega verður bætt við leikdögum, kemur í ljós þegar líður á mótið.
 
Keppni í E, F, G og H-riðlum hefst fimmtudaginn 7. mars.