Meistaramót píludeildar í 501 á sunnudag

Meistaramót píludeildar Þórs í 501, einmenningi, fer fram sunnudaginn 7. maí.
Meðlimir í píludeildinni eru gjaldgengir í mótið og ekkert þátttökugjald fyrir þá. Keppt verður í kvenna- og karlaflokki, en ef ekki næst að manna báða flokka verða þeir sameinaðir. Dregið verður í riðla af handahófi og engin styrkleikaröðun. Spilað verður í riðlum og svo útsláttarkeppni.
Mótið hefst kl. 13 á sunnudaginn og verður húsið opnað kl. 12.
Skráning á mótið - smellið hér.
Til að skoða skráningu - smellið hér.
 
Íslandsmótið í 501, einmenningi, verður haldið í Reykjavík sunnudaginn 14. maí og er stefnt að hópferð frá píludeild Þórs á það mót.