Pílukast: Hrefna Sævarsdóttir Íslandsmeistri öldunga

Tvær úr Þór í úrslitaleiknum. Hrefna Sævarsdóttir vann Íslandsmeistaratitil öldunga í dag þegar hún …
Tvær úr Þór í úrslitaleiknum. Hrefna Sævarsdóttir vann Íslandsmeistaratitil öldunga í dag þegar hún sigraði Guðrúnu Þórðardóttur í úrslitaviðureigninni. Mynd: Píludeild Þórs.

Hrefna Sævarsdóttir tryggði sér í dag Íslandsmeistaratitil öldunga (50+). 

Það var reyndar klárt fyrir úrslitaleikinn í dag að Íslandsbikarinn kæmi norður því það voru tvær pílukonur úr Þór sem mættust í úrslitaviðureigninni, Hrefna og Guðrún Þórðardóttir. Hrefna hafði betur og hampaði Íslandsbikarnum í kvennaflokki 50+ og Guðrún fékk auðvitað silfrið.

Innilegar hamingjuóskir til beggja!

Meira af mótinu síðar.