Pílukast: Mikil þátttaka í Fyrirtækjamótinu

Skráningar í Fyrirtkæjamót píludeildar Þórs og Slippfélagsins fóru fram úr björtustu vonum. Alls skráðu 28 fyrirtæki lið í mótið.

Upphaflega var ætlunin að hefja keppni fimmtudaginn 15. febrúar, en nú hefur verið ákveðið að fresta því til fimmtudagsins 29. febrúar enda að mörgu að hyggja, ekki aðeins fyrir þetta mót og þess fjölda fyrirtækja sem skráð hafa lið, heldur er allt á fullu þessa dagana við að undirbúa Akureyri Open sem haldið verður í Laugargötunni og Sjallanum 23. og 24. febrúar. 

Skráningu í mótið lauk í gær.