Pílukast: Þrjú frá Þór á Íslandsmóti öldunga

Þór á þrjá fulltrúa á Íslandsmóti öldunga sem fram fer í aðstöðu Pílukastfélags Reykjavíkur í dag.

Mótið hefst kl. 13 í dag og þar munu þau Guðrún Þórðardóttir, Hrefna Sævarsdóttir og Jón Örn Pálsson standa vaktina fyrir okkar hönd.

Í kvennaflokki eru aðeins fjórar sem eru skráðar til leiks og því keppt í einum riðli og svo útsláttarkeppni. Ásamt þeim Guðrúnu og Hrefnu eru Sólveig Daníelsdóttir og Sigrún Ingólfsdóttir skráðar til leiks. Í karlaflokki eru skráðir 33 keppendur og spilað í átta riðlum. Jón Örn fær verðuga mótherja, var dreginn í riðil með Haraldi Hannessyni, Þorgeiri Guðmundssyni og Sigurði Aðalsteinssyni. 

Upplýsingar um mótið má finna á vef ÍPS - sjá hér.