Píluvertíðin að hefjast eftir sumarfrí

Píludeildin er að fara af stað að nýju eftir sumarfrí og verður með skemmtimót á föstudagskvöldið, ekkert þátttökugjald!

Húsið verður opnað kl. 18 og byrjað að spila kl. 19:30. 
 
Farið verður yfir það helsta sem verður á dagskrá hjá píludeildinni í vetur:
  • Deildarkeppni
  • Fyrirtækjakeppni
  • Meistaramót píludeildar Þórs
  • Akureyri Open
  • Scolia-mót píludeildar Þórs
  • Novis-deildin
  • Æfingar fyrir krakka og unglinga
  • Almennar opnanir fyrir meðlimi
 
Skráning - smellið hér.