Unglingadagur hjá píludeildinni á laugardag

Píludeild Þórs verður með sérstakan unglinadag í aðstöðu deildarinnar í Íþróttahúsinu við Laugargötu á laugardaginn.

Krakkar á aldrinum 10-18 ára eru þá boðin velkomin að kíkja við og fá kennslu og kynningu á pilukasti hjá Pétri Rúðrik Guðmundssyni, landsliðsþjálfara Íslands í pílukasti undir 18 ára. 

Dagskráin verður tvískipt. Unglingar á aldrinum 10-14 ára fá kennslu og kynningu kl. 11:30-12:30 og svo 15-18 ára kl 12:45-13:45. Píludeild Þórs heldur svo lauflétt skemmtimót kl. 14-16 og verða veglegir vinningar fyrir sigurvegara.

Píludeildin leggur mikið í þennan dag. DJ Grill mætir með grillvagnin fyrir utan aðstöðuna og sér um að metta öll sem skrá sig - og það ókeypis! Skráning er með tölvupósti í pila@thorsport.is.