Hvaða skór henta á gervigrasi?

Þessi mynd sýnir þrjár helstu skótegundir fyrir mismunandi undirlög
Þessi mynd sýnir þrjár helstu skótegundir fyrir mismunandi undirlög

Kæru foreldrar/forráðamenn iðkenda í knattspyrnu!

Þjálfarar vilja benda ykkur á mikilvægi þess að börn og unglingar, reyndar bara allir iðkendur yfir höfuð noti réttan skóbúnað á gervigrasi. Sér í lagi er þetta mikilvægt á grasinu í Boganum þar sem það er óvenju stammt undirlag í húsinu þar sem það er orðið gamalt en einnig þar sem grasið er sjaldnar rakt þó svo að stefnan sé að reyna að vökva það reglulega í vetur til að minnka meiðslahættu. Meiðslahætta af því að nota rangan skóbúnað er margföld.

En hvað er réttur skóbúnaður ? Til að gera langa sögu stutta þá mælum við með að fólk kaupi alltaf svokallaða AG skó. AG stendur fyrir artifical ground (gervigras) og er yfirleitt sett aftast eða fremst í heiti á skótegundinni. Takkarnir á AG skóm eru yfirleitt bæði fleiri og styttri en á svokölluðum FG skóm sem eru með mun lengri og „grófari“ takka. Eða SG skóm sem eru með stál takka sem eru raunar bannaðir í yngri flokkum á Íslandi og ólöglegir á öllum gervigrasvöllum.

 

Eftirfarandi grein birtist á vef hamagasin.is og lýsir ágætlega muninum á þessum skóm og mikilvægi þess að nota réttan skóbúnað til að fyrirbyggja meiðsl:

Hvernig geta takkaskór ekki verið bara takkaskór? Nike hefur framleitt fótboltaskó frá árinu 1971 en þá kynntu þeir til leiks fyrsta fótboltaskóinn. Frá þeim tíma hafa verið stöðugar þróanir og breytingar á fótboltaskóm. Í dag er Nike með fjóra flokka af skóm sem hver og einn er hannaður með ákveðna eiginleika í huga. Þessir flokkar eru Mercurial, Hypervenom, Magista og Tiempo. Í hverjum og einum flokki er svo að finna fjöldann allan af undirgerðum sem geta breyst eftir sólanum, tökkunum, yfirbyggingu og verði.

 

 

Nike framleiðir fótboltaskó með mismunandi sólum sem henta mismunandi undirlagi og notkun hverju sinni.

(Innskot blm, flestir aðrir framleiðendur framleiða einnig samskonar skótegundir, þ.e. skó með tökkum sem ætlaðir eru mismunandi undirlögum). Flest allir framleiðendur flokka skótegundir sínar í AG, FG og SG)

Nike framleiðir fótboltaskó með mismunandi sólum sem henta mismunandi undirlagi og notkun hverju sinni. Aðal gerðirnar frá Nike eru takkaskór fyrir blautt og mjúkt gras (SG eða Soft ground), skór fyrir þurrt náttúrulegt gras (FG eða Firm ground) og svo skór fyrir gervigras (AG eða Artificial grass).

Það er mjög mikilvægt að velja rétta skó fyrir hvert undirlag fyrir sig. Gervigrasskór eru sérhannaðir fyrir gervigras og eru takkarnir örlítið styttri og öðruvísi í laginu en á grasskóm. Með því að nota rétta skó á gervigrasi er hægt að koma í veg fyrir meiðsli þar sem takkarnir festast ekki í þurru og stömu gervigrasinu. Einnig er minni hætta á því að skórnir eyðileggist þar sem skórnir eru sérstaklega styrktir.

Ef grasskór eru notaðir á gervigrasi er aukin hætta á meiðslum

Ef grasskór eru notaðir á gervigrasi er aukin hætta á meiðslum þar sem takkarnir eru lengri og oft á tíðum beittari og geta því festst í gervigrasinu. Gervigras er ekki náttúrulegt efni og því gefur það mjög lítið eftir þegar mikill þungi þrýstir niður á það, þá er það annað hvort skórinn eða fóturinn á leikmanninum sem gefur eftir og þá er voðinn vís og meiðsli oft afleiðingin.

SG (Soft ground)

Fótboltaskór sem henta best fyrir blauta grasvelli sem eru lausir í sér og þar sem leikmaðurinn þarf hámarksgrip. Takkarnir eru yfirleitt blanda af venjulegum plast tökkum og stáltökkum sem eru skrúfaðir í sólann. Takkarnir eru lengri á SG skóm og fara því dýpra niður í völlinn og ná betra gripi. Hafa ber í huga að fótboltaskór með stáltökkum eru ekki leyfðir í flokkum yngri en 2. flokkur á Íslandi.

 

FG (Firm ground)

Fótboltaskór sem henta best fyrir þurra grasvelli með náttúrulegu grasi. Takkarnir eru styttri en á SG skóm og fara því ekki eins djúpt í þurru grasi. Ekki hentugir á gervigrasi.

 

AG (Artificial ground)

Fótboltaskór sem henta best fyrir gervigras. Takkarnir eru örlítið styttri en á venjulegum gras takkaskóm og eins eru þeir aðeins öðruvísi í laginu sem gerir það að verkum að það er minni hætta á því að þeir festist í vellinum. Sólinn á gervigrasskónum nær einnig aðeins hærra upp á yfirbyggingu skósins sem eykur endingu og gerir hann slitsterkari á hörðu gervigrasi.

AG skór