Afrakstur kvennakvöldsins afhentur

Frá afhendingunni í Lystigarðinum í dag. Hér er hluti undirbúningsnefndarinnar ásamt fulltrúum frá k…
Frá afhendingunni í Lystigarðinum í dag. Hér er hluti undirbúningsnefndarinnar ásamt fulltrúum frá körfuknattleiksdeild Þórs. Frá vinstri: Elsa Björg Pétursdóttir, Bjarney Sigurðardóttir, Stefán Þór Pétursson, formaður körfuknattleiksdeildar, Vaka Bergrún Jónsdóttir leikmaður, Eva Björk Halldórsdóttir og Linda Guðmundsdóttir.

Kvennakvöldsnefndin hefur afhent fulltrúum félaganna sem að kvöldinu stóðu afraksturinn. Það var gert í dýrindis veðri í Lystigarðinum í dag.

Kvennakvöld Þórs og KA, sameiginlegt styrktarkvöld fyrir kvennaliðin fjögur í boltaíþróttunum hér á Akureyri, knattspyrnulið Þórs/KA, handboltalið KA/Þórs, blaklið KA og körfuboltalið Þórs, var haldið í maí og nú hafa þessi fjögur lið fengið afhentan styrk frá kvennakvöldsnefndinni.

Undirbúningsnefndin bauð fulltrúum úr stjórn og þessum fjórum kvennaliðum í Lystigarðinn á Akureyri í dásamlegu veðri í hádeginu í dag þar sem hvert lið fékk afhenta ávísun upp á eina milljón króna.

Í tilkynningu frá nefndinni segir meðal annars.

Við í kvennakvöldsnefndinni buðum knattspyrnudeild Þórs/KA, handknattleiksdeild KA/Þórs, blakdeild KA og körfuknattleiksdeild Þórs að taka þátt í þessu verkefni með okkur. Nefndin sá um viðburðinn og tóku fulltrúar frá öllum deildum þátt í undirbúningi og vinnu á sjálfu kvöldinu. Kvennakvöldið heppnaðist gríðarlega vel og fór fram úr okkar björtustu vonum. Með þessu viljum við bæði styrkja kvennadeildirnar ásamt því að vekja meiri athygli á kvennaíþróttum í bænum sem hafa verið að standa síg gríðarlega vel undanfarin ár.

Kvennakvöldsnefndin er þannig skipuð:

  • Linda Guðmundsdóttir
  • Elsa Björg Pétursdóttir
  • Eva Björk Halldórsdóttir
  • Bjarney Sigurðardóttir
  • Þóra Pétursdóttir
  • Anna Kristín Magnúsdóttir
  • Elma Eysteinsdótir

Við afhendinguna í dag mættu fulltrúar úr stjórnum þessara fjögurra liða/deilda ásamt fulltrúum leikmanna.

  • Þór körfubolti: Stefán Þór Pétursson formaður og Vaka Bergrún Jónsdóttir leikmaður.
  • KA/Þór handbolti: Guðrún Linda Guðmundsdóttir úr kvennaráði KA/Þórs og Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir fyrirliði.
  • KA blak: Stenþór Traustason úr stjórn blakdeildar og Jóna Margrét Arnarsdóttir leikmaður.
  • Þór/KA fótbolti: Dóra Sif Sigtryggsdóttir formaður og Sandra María Jessen fyrirliði.


Fulltrúar liðanna/deildanna fjögurra. Sandra María Jessen, fyrirliði Þórs/KA, Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður stjórnar Þórs/KA, Jóna Margrét Arnarsdóttir, frá blakliði KA, Steinþór Traustason, frá stjórn blakdeildar KA, Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir, fyrirliði KA/Þórs, Guðrún Linda Guðmundsdóttir, úr kvennaráði KA/Þórs, Vaka Bergrún Jónsdóttir, leikmaður körfuboltaliðs Þórs, og Stefán Þór Pétursson, formaður körfuknattleiksdeildar Þórs.


Fulltrúar undirbúningsnefndarinnar ásamt fyrirliða Þórs/KA. Elsa Björg Pétursdóttir, Bjarney Sigurðardóttir, Sandra María Jessen, Linda Guðmundsdóttir og Eva Björk Halldórsdóttir. 


Fulltrúar undirbúningsnefndarinnar ásamt fulltrúum KA/Þórs. Elsa Björg Pétursdóttir, Bjarney Sigurðardóttir, Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir, leikmaður KA/Þórs, Guðrún Linda Guðmundsdóttir, úr kvennaráði KA/Þórs, Linda Guðmundsdóttir og Eva Björk Halldórsdóttir.