Akureyrarleikur í Lengjubikar

Þórsarar fara upp á Brekku síðdegis og mæta þar KA í A-deild Lengjubikars karla í knattpsyrnu. Leikurinn hefst kl. 17:30, athugið breyttan leiktíma.

Þór og KA eru í sama riðli í A-deild Lengjubikarsins ásamt Fjölni, Fylki, Keflavík og Þrótti. Þórsarar hafa leikið þrjá leiki til þessa, unnu Keflvíkinga en biðu ósigur gegn Fylki og Fjölni. Núna þegar sumarveðrið er að stríða okkur um hávetur á hér Akureyri er kominn vorfiðringur í knattspyrnufólk og fer leikurinn fram utan dyra, var færður úr Boganum upp á KA-svæðið. Vegna birtuskilyrða og ónógs ljósmagns er hins vegar ekki hægt að spila hann þar á upphaflega áætluðum leiktíma og var leikurinn því jafnframt færður til kl. 17:30.

Lokaleikur Þórsara í riðlinum verður síðan gegn Þrótturum syðra laugardaginn 11. mars.

Fimmtudagur 2. mars kl. 17:30 á KA-velli: KA - Þór
Laugardagur 11. mars kl. 15:00 á Þróttarvelli: Þróttur - Þór