Aron Ingi kominn heim

Aron Ingi í leik á Þórsvellinum í fyrra.
Aron Ingi í leik á Þórsvellinum í fyrra.

Aron Ingi Magnússon hefur yfirgefið ítalska liðið Venezia eftir tæplega átta mánaða dvöl en hann var lánaður frá Þór um mitt síðasta keppnistímabil.

Aron Ingi mætti aftur til æfinga í Þorpinu í byrjun vikunnar og er kominn með leikheimild og því löglegur þegar Þór heimsækir Þrótt í Lengjubikarnum næstkomandi laugardag.

Aron er á nítjánda aldursári; hefur leikið 25 leiki fyrir meistaraflokk Þórs og skorað í þeim eitt mark. Hann á fjóra landsleiki að baki fyrir U19 ára landslið Íslands.

Við bjóðum Aron Inga hjartanlega velkominn heim og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni í sumar.