Bjarni Guðjón með U19 til Englands

Bjarni Guðjón í leik með Þór síðasta sumar.
Bjarni Guðjón í leik með Þór síðasta sumar.

Þórsarinn Bjarni Guðjón Brynjólfsson er hluti af U19 ára landsliði Íslands sem tekur þátt í milliriðlum undankeppni EM 2023.

Ísland er í riðli með Englandi, Tyrklandi og Ungverjalandi, en leikið er á Englandi dagana 22.-28. mars.

Efsta lið riðilsins fer beint áfram í lokakeppnina sem fer fram á Möltu dagana 3.-16. júlí 2023.

Smelltu hér til að sjá hópinn en í hópnum er annar drengur sem sleit fyrstu takkaskónum sínum í Þorpinu en það er Kristian Nökkvi Hlynsson, sem er nú á mála hjá hollenska stórveldinu Ajax.