Davíð með U17 til Wales

Davíð Örn Aðalsteinsson.
Davíð Örn Aðalsteinsson.

Þórsarinn Davíð Örn Aðalsteinsson er hluti af U17 ára landsliðshópi Íslands sem tekur þátt í milliriðlum undankeppni EM 2023.

Ísland er í riðli með Svartfjallalandi, Wales og Skotlandi. Þau lið sem vinna sína riðla fara áfram í lokakeppnina ásamt þeim sjö liðum með bestan árangur í öðru sæti riðlanna, en leikið er í átta riðlum.

Riðillinn verður leikinn í Wales dagana 22.-28. mars.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Davíð hefur verið í æfingahópum U17 að undanförnu en á enn eftir að leika sinn fyrsta landsleik. Þessi 16 ára gamli varnarmaður hefur leikið með meistaraflokki í Lengjubikarnum í vetur.

Óskum Davíð til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu.