110 ára afmæli Þórs - Afmælisveisla í Hamri á föstudag

Íþróttafélagið Þór verður 110 ára föstudaginn 6. júní næstkomandi.
 
Af því tilefni boðar félagið til veislu í Hamri klukkan 17:00 og eru félagsmenn hvattir til að mæta.
 
Dagskrá
Veittar heiðursviðurkenningar
Tónlistaratriði
Léttar veitingar
 
Einnig verður föstudagskaffið á sínum stað að morgni föstudags þar sem boðið verður upp á pönnukökur og með því í tilefni dagsins. Eru allir Þórsarar velkomnir í þann góða félagsskap sem hittist alla föstudaga fyrir hádegi.