Fimm frá KA/Þór með U19 og U17 í Tékklandi

U17 landsliðið í Tékklandi. Myndin er af vef HSÍ.
U17 landsliðið í Tékklandi. Myndin er af vef HSÍ.

KA/Þór átti nokkra fulltrúa með landsliðum Íslands um liðna helgi, en U19 og U17 landsliðin fóru til Tékklands og spiluðu bæði tvo leiki gegn landsliðum Tékklands.

U19 - ein frá KA/Þór

Hildur Lilja Jónsdóttir var í leikmannahópi U19 landsliðsins sem mætti Tékkum tvisvar ytra um liðna helgi. Tékkar höfðu betur í báðum leikjunum, 24-17 og svo 26-25 í seinni leiknum. Hildur Lilja skoraði tvö mörk í fyrri leiknum.

U17 - fjórar frá KA/Þór

U17 landsliðið mætti Tékkum tvisvar. Fjórar úr KA/Þór voru í hópnum hjá U17 landsliðinu, þær Bergrós Guðmundsdóttir, Kristín Birta Líndal Gunnarsdóttir, Lydía Gunnþórsdóttir og Sif Hallgrímsdóttir. Tékkar unnu báða leikina, 29-18 og 28-14. Lydía Gunnþórsdóttir skoraði fimm mörk í fyrri leiknum og þrjú í þeim seinni. Sif Hallgrímsdóttir varði níu skot í fyrri leiknum.

Sjá fréttir á vef HSÍ.

U17 kvenna | Tap í fyrri leiknum gegn Tékkum – HSÍ (hsi.is)

U-17 kvenna | Tap í seinni leiknum gegn Tékklandi – HSÍ (hsi.is)

Sjá frétt á Akureyri.net

Fimm frá KA/Þór með landsliðum í Tékklandi | akureyri.net