Fótboltasumarið farið af stað

Um helgina hófst fótboltasumarið með formlegum hætti þegar Íslandsmót yngri flokka fóru af stað.
 
3.flokkur karla hélt til Reykjavíkur og gerði 1-1 jafntefli gegn Fram í gær og leika gegn Víkingum í dag klukkan 12:00 í Víkinni.
 
3.flokkur kvenna leikur gegn HK á KA-velli í dag klukkan 15:00.
 
2.flokkur karla leikur gegn Gróttu í Boganum í dag klukkan 15:00.
 
Hvetjum áhugasama til að mæta á völlinn og styðja okkar lið.