Heimaleikjahelgi í fótboltanum og mikið um að vera í Hamri

Tveir heimaleikir á dagskrá um helgina hjá meistaraflokkunum okkar í fótbolta og heljarinnar dagskrá í kringum þá.

Þór hefur leik í Lengjudeildinni í fótbolta í kvöld þegar HK kemur í heimsókn í Bogann. Hefst leikurinn klukkan 18:00 en Hamar opnar 90 mínútum fyrir leik og verður þar mikið um dýrðir líkt og sjá má hér að neðan.

Smelltu hér til að tryggja þér miða á leikinn og hér til að versla ársmiða hjá Þór.

Þór/KA fær FH í heimsókn í Bogann á morgun, laugardaginn 3.maí í 4.umferð Bestu deildarinnar og hefst leikurinn klukkan 14:30. Líkt og fyrir alla leiki verður hamborgarasala í Hamri fyrir leik.

Smelltu hér til að tryggja þér miða á leikinn og hér til að versla ársmiða hjá Þór/KA 

Strax að leik loknum á laugardaginn hefst svo forpartý fyrir Herra- og Konukvöld.