Helgarfrí á Þórssvæðinu, lokað fram á þriðjudagsmorgun

Engin starfsemi verður í Hamri og Þórssvæðinu frá fimmtudegi fram á mánudag og Þórsheimilið lokað.

Starfsfólk Þórs er farið í verslunarmannahelgarleyfi og verður félagsheimilið lokað frá og með fimmtudeginum 3. ágúst til og með mánudeginum 7. ágúst. Engar æfingar verða á vegum yngri flokka Þórs um helgina. Hamar verður svo opnaður aftur þegar starfsfólk mætir til vinnu kl. 8 á þriðjudagsmorguninn.

Aðeins verða fáeinar æfingar hjá meistaraflokkunum í knattspyrnu, en starfsemi Þórs liggur að öðru leyti niðri fram á þriðjudag.