Íþróttafólk Þórs - tilnefningar deilda 1990-2023

Heimasíðan heldur áfram með upphitun eða upprifjun í aðdraganda að kjöri íþróttafólks Þórs. Í dag eru starfandi átta deildir innan félagsins, misstórar og með mismikil umsvif eftir atvikum.

Deildir félagsins velja að jafnaði íþróttafólk úr sínum röðum og tilnefna það til kjörs íþróttafólks Þórs, en eins og sjá má á myndunum hér að neðan tilnefna ekki allar deildir alltaf. Myndirnar hér að neðan sýna tilnefningar hverrar deildar fyrir sig á árunum 1990-2023. Níunda og neðsta myndin er listi yfir skíðafólk sem tilnefnt var í kjörinu áður en síðafólkið færði sig yfir í SKA. Hér kemur fram hjá hverri deild fyrir sig hvaða íþróttafólk er tilnefnt í kjörinu á yfirstandandi ári. Sex deildir af átta sendu inn tilnefningar, karl og konu, alls 12 einstaklinga.

Grænir reitir sýna það fólk sem varð fyrir valinu sem íþróttafólk Þórs og þegar stjarna (*) er við nafn merki það að viðkomandi var einnig valin(n) íþróttamaður, íþróttakarl eða íþróttakona Akureyrar sama ár.

Nánari kynning á þeim 12 sem eru tilnefnd af deildunum í kjörinu á íþróttafólki Þórs 2023 verður birt hér á heimasíðunni á morgun.