Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Meistaraflokkslið Þórs í körfubolta hafa lokið keppni á Íslandsmótinu en síðasti leikur tímabilsins hjá stelpunum okkar fór fram í Íþróttahöllinni í gær þegar Þór tapaði fyrir Fjölni í undanúrslitaviðureign í úrslitakeppni B-deildar.
Fjölnir vann einvígið 3-0 en nánar má lesa um leikinn á Akureyri.net.
Strákarnir okkar hafa einnig lokið keppni en þar hafnaði Þór í 10.sæti af 12 liðum í B-deildinni.
Liðið vann fjóra leiki og tapaði 18. Fylkir og Hamar unnu einnig fjóra leiki, en Hamar fellur í 2. deild vegna slakasta árangurs í innbyrðis viðureignum þessara þriggja liða.