Körfubolti: Þór mætir Skallagrími í Borgarnesi í kvöld

Keppni í 1. deild karla í körfubolta er að hefjast aftur eftir tæplega mánaðarlangt jólafrí. Okkar menn fara í Borgarnes og mæta liði Skallagríms í kvöld kl. 19:15.

Skallagrímur er í 6. sæti deildarinnar með fimm sigra í tíu leikjum, en Þór í 8. sæti með þrjá sigra í tíu leikjum. Leikurinn er í 11. umferð mótsins sem er sú síðasta í fyrri hluta deildarkeppninnar.

Staðan í deildinni: