Olísdeildin hefst í dag - Dagskrá í Höllinni!

Mynd - Skapti Hallgrímsson/Akureyri.net
Mynd - Skapti Hallgrímsson/Akureyri.net

Okkar menn í handboltanum hefja leik í Olísdeildinni í kvöld þegar ÍR kemur í heimsókn í Íþróttahöllina á Akureyri.

Þór er að snúa aftur meðal þeirra bestu í handboltanum eftir að hafa verið í B-deild síðan 2021.

Við hvetjum Þórsara til að fjölmenna í Höllina og styðja okkar menn til sigurs í leiknum sem hefst klukkan 19:00 en Höllin verður opin frá klukkan 17:30 og hægt að taka kvöldmatinn fyrir alla fjölskylduna í Höllinni.

Akureyri.net fjallar um leikinn á vefsíðu sinni í dag og má nálgast umfjöllunina með því að smella hér.