Sandra María Jessen er íþróttakona Akureyrar 2023

Sandra María Jessen var valin besti leikmaður Þórs/KA og verðlaunuð á lokahófi í haust. Ljósmynd: Sk…
Sandra María Jessen var valin besti leikmaður Þórs/KA og verðlaunuð á lokahófi í haust. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Rétt í þessu var kjöri íþróttafólks Akureyrar fyrir árið 2023 lýst á verðlaunahátíð á vegum Íþróttabandalags Akureyrar og Akureyrarbæjar sem fram fór í Hofi. Sandra María Jessen, önnur tveggja íþróttakvenna Þórs var kjörin íþróttakona Akureyrar og Maddie Sutton, sem deilir titlinum íþróttakona Þórs með Söndru Maríu, varð í 4. sæti í kjörinu. Baldvin Þór Magnússon úr UFA var kjörinn íþróttakarl Akureyrar. 

Kjöri íþróttafólks Akureyrar var lýst í Hofi fyrir stundu. Okkar fólk var á meðal tíu efstu eins og áður hefur komið fram. Íþróttafélagið Þór sendi inn þrjár tilnefningar, en það voru hnefaleikakappinn Elmar Freyr Aðalheiðarson, körfuknattleikskonan Maddie Sutton og knattspyrnukonan Sandra María Jessen úr Þór/KA.

Maddie Sutton hafnaði í 4. sæti kvenna í kjöri íþróttakonu Akureyrar 2023. Hún hlaut að launum 200 þúsund króna framlag úr Afrekssjóði Akureyrar, eignarbikar sem Höldur gefur, blóm, gjafabréf og vörur frá hinum ýmsu samstarfsfyrirtækjum ÍBA og íþróttahátíðarinnar. 

Sandra María Jessen, fyrirliði Þórs/KA, var kjörin íþróttakona Akureyrar og Baldvin Þór Magnússon, hlaupari úr UFA, íþróttakarl Akureyrar. Þau fengu að launum 500.000 krónu framlag úr Afrekssjóði Akureyrar, farand- og eignarbikar gefinn af Höldi, blómvönd frá Blómabúð Akureyrar, ásamt gjafabréfum og varningi frá Ferðaskrifstofunni Verdi, Hótel Kea, Glerártorgi, MS, Sportveri, Skógarböðunum, Kjarnafæði/Norðlenska, Heilbrigðri húð, 66° Norður, ITS Macros og Vorhús.

Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.


Skjáskot úr útsendingu frá íþróttahátíð ÍBA og Akureyrarbæjar.


Skjáskot úr útsendingu frá íþróttahátíð ÍBA og Akureyrarbæjar.


Skjáskot úr útsendingu frá íþróttahátíð ÍBA og Akureyrarbæjar.

Beint streymi var frá hátíðinni og hér er hægt að horfa á upptökuna: