Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Knattspyrnudeild Þórs og SBA-Norðurleið hafa gert með sér samstarfssamning sem nær til yfirstandandi keppnistímabils í Bestu deildinni.
Lið Þórs ferðast alla jafna í útileiki sína með SBA og hefur gert í mörg ár við góðan orðstír.
SBA-Norðurleið sérhæfir sig í útleigu hópferðabifreiða og er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Íslandi, með starfsstöðvar á Akureyri og í Reykjavík. Fyrirtækið hóf starfsemi sína árið 1980 og hefur byggt upp sterka og trausta starfsemi í gegnum árin.
Við bjóðum SBA velkomið í hóp öflugra samstarfsaðila knattspyrnudeildar Þórs.
