Takk fyrir handboltamótið um helgina

Unglingaráð Þórs ásamt unglingráði KA héldu fyrsta Íslandsmót vetrarins í handbolta á Akureyri um nýliðna helgi. Sprettsmótið var haldið fyrir iðkendur í 6.flokki, á eldra ári bæði karla og kvenna. Spilað var á 3 stöðum, Nautaskóla, Síðuskóla og KA heimilinu, ásamt því að gist var í 2 skólum. Svona mót er mikilvæg tekjulind fyrir handboltafélögin á Akureyri. Samtals voru Akureyrarliðin með 9 lið skráð til leiks og enduðu 2 lið þar á að vinna sínar deildir.

Svona mót er ekki hægt að halda án hjálpar frá sjálfboðaliðum við hinar ýmsu vaktir. Gæslu,- matar,- þrifavaktir ásamt ritara og dómgæslu.

Unglingaráð Þórs og KA handboltans senda kærar þakkir til þeirra sem aðstoðuðu okkur um helgina.

Takk fyrir.

Hérna má sjá úrslit kvenna

Hérna má sjá úrslit karla

Nokkrar myndir frá helginni