Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Úthlutun úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA fór fram við hátíðlega athöfn í Hofi á Akureyri 1. desember s.l. en þetta er í 92. sinn sem sjóðurinn veitir styrki.
Sjóðurinn var stofnaður árið 1936 en þá hlaut Sjúkrahúsið á Akureyri fyrsta og eina styrk sjóðsins. Að þessu sinni var úthlutað styrkjum að fjárhæð tæplega 30 milljónir króna til fjölbreyttra samfélagsverkefna, íþrótta- og æskulýðsstarfsemi og til ungs efnilegs afreksfólks á félagssvæði KEA.
Meðal annars var veittur styrkur til Þórs og einnig hlutu nokkrir Þórsarar afreksstyrk.
Við þökkum KEA fyrir styrkinn!
Nánar má lesa um úthlutunina á vef KEA með því að smella hér.