Þór og Þór/KA spila í Egilshöll - breyttir leiktímar

Leiktímum og leikstað meistaraflokksliðanna okkar í fótboltanum hefur verið breytt, en þau eiga bæði útileik gegn Þrótturum.

Ákveðið var að færa þessa leiki inn vegna kuldakastsins sem nú gengur yfir landið og um leið þurfti að breyta leiktímum.

Egilshöll
Föstudagur 10. mars kl. 21:00
Þróttur - Þór/KA

Egilshöll
Laugardagur 11. mars kl. 15:30
Þróttur - Þór