Þór tekur á móti Hrunamönnum

Toni Cutuk í leik með Þór gegn Hrunamönnum fyrr í vetur. Mynd: Palli Jóh
Toni Cutuk í leik með Þór gegn Hrunamönnum fyrr í vetur. Mynd: Palli Jóh

Þór tekur á móti Hrunamönnum

Á morgun föstudag tekur Þór á móti Hrunamönnum í leik sem fram fer í íþróttahöllinni og hefst klukkan 19:15. Þar sem þetta er lokaleikur liðsins á þessu tímabili hvetjum við stuðningsmenn Þórs að fjölmenna á leikinn og styðja liðið til sigurs.

Fyrir leik verða seldir grillaðir hamborgarar, borgari og drykkur á 1.500 krónur og miðaverð á leikinn er 2000 krónur en frítt fyrir 16 ára og yngri.

Fyrir þá sem ekki komast á leikinn þá verður hann í beinu streymi á Þór TV https://www.livey.events/thortv

Við hvetjum fólk til þess að kynna sér þá kosti sem fylgir því að vera meðlimur í Sjötta manninum stuðningsmannaklúbb deildarinnar. Um klúbbinn og skráningu má finna á eftirfarandi slóð https://www.thorsport.is/korfubolti/arskort

Stöðuna í deildinni má sjá HÉR

Áfram Þór alltaf, alls staðar