Þrír Þórsarar í æfingahópi U15

Þórhallur Siggeirsson, landsliðsþjálfari U15 karla, hefur valið hóp fyrir úrtaksæfinga dagana 3.-5. apríl. Æfingarnar fara fram í Miðgarði í Garðabæ.

Um er að ræða 29 manna æfingahóp og af þeim hópi eru þrír Þórsarar.

Það eru þeir Ásbjörn Líndal Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson og Sverrir Páll Ingason.

Óskum drengjunum til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.