Treyjusala Macron fyrir Grindavík

Macron í Reykjavík er með í sölu sérstaka Grindavíkurtreyju og rennur ágóðinn til styrktar starfi yngri flokka Ungmennafélags Grindavíkur.  

Boðið er upp á að fá „ÉG TRÚI“ eða „240“ á bakið, eða þá nafn og númer að eigin vali. Treyjan verður framleidd í takmörkuðu upplagi og þessa dagana stendur yfir forpöntun á treyjum í vefversluninni á Macron.is. Upplýsingar um verð og stærðir má finna í vefversluninni.