Úrslitaleikur Kjarnafæðismótsins í kvöld

Þór og KA mætast í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins í Boganum í kvöld kl. 20.

Þessi lið unnu bæði sína riðla í mótinu og mætast í úrsliteleik, eins og oftast áður. Aðgangur kostar 500 krónur og rennur óskipt til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Gestum er bent á að bílastæði eru við báða enda Bogans.