Egill Orri æfir með FC Midtjylland

Egill tók þátt í leik með Midtjylland U17 gegn Silkeborg og lagði upp eitt mark í 4-1 sigri.
Egill tók þátt í leik með Midtjylland U17 gegn Silkeborg og lagði upp eitt mark í 4-1 sigri.

Þórsarinn Egill Orri Arnarsson dvelur þessa dagana í Danmörku, nánar tiltekið í Ikast þar sem hann æfir og spilar með unglingaliðum danska úrvalsdeildarliðsins Midtjylland. Er um að ræða vikudvöl.

 

Þetta er í þriðja sinn sem hann heimsækir Midtjylland á undanförnu ári.

 

Egill er á sextánda aldursári og er því á eldra ári 3.flokks en hann hefur verið í æfingahópi meistaraflokks Þórs í vetur.

 

Við óskum Agli til hamingju með þetta tækifæri og góðs gengis í Danmörku.

 

Aðstæður hjá Midtjylland eru til fyrirmyndar.