Höldur - Bílaleiga Akureyrar og Þór framlengja samstarf

Myndin var tekin í höfuðstöðvum Hölds við undirritun.  Sveinn Elías, Arna Skúladóttir og Steingrímur…
Myndin var tekin í höfuðstöðvum Hölds við undirritun. Sveinn Elías, Arna Skúladóttir og Steingrímur Birgisson.

Höldur - Bílaleiga Akureyrar og Knattspyrnudeild Þórs endurnýja samstarfið

 

Í upphafi árs undirrituðu Höldur og Knattspyrnudeild Þórs áframhaldandi samstarfssamning til næstu þriggja ára.

Höldur hefur stutt við bakið á öflugu starfi knattspyrnudeildar Þórs til fjöldamargra ára eða allt frá árinu 2007 og því mjög ánægjulegt að fjölga góðum samstarfsárum enn frekar.

Knattspyrnudeild Þórs fagnar áframhaldandi samstarfi sem gerir Höld - Bílaleigu Akureyrar að einum af lykilsamstarfsaðilum deildarinnar.

Mun auglýsing frá Höldi því áfram prýða keppnisbúninga meistaraflokks karla næstu árin. 

Merki félagsins | Bílaleiga Akureyrar - Höldur ehf.