Knattspyrna: 77. Goðamót Þórs um helgina

Knattspyrnudeild Þórs stendur um helgina fyrir Goðamóti í 6. flokki drengja og er þetta 77. mótið í röð Goðamótanna sem nú hafa verið haldin í meira en tvo áratugi!

Goðamótið í 6. flokki drengja er jafnan stærsta Goðamót hvers árs og er svo einnig nú. Alls taka 96 lið frá 14 félögum þátt í mótinu að þessu sinni. Keppni hefst í Boganum í dag kl. 14 og verður spilað til að verða átta í kvöld. Áfram verður haldið frá morgni til kvölds á morgun og fram á þriðja tímann á sunnudag.