Knattspyrna: Annar fjögurra marka sigur Þórs í Lengjubikar

Þórsarar unnu Stjörnuna í öðrum leik sínum í Lengjubikar karla í Boganum í dag með fimm mörkum gegn einu. Fimm mörk voru skoruð á síðustu 25 mínútunum.

Stjarnan mætti með mjög ungt meistaraflokkslið norður, ef svo má segja, sá elsti í leikmannahópnum fæddur 2003 og sá yngsti 2008. Aðeins eitt mark var skorað í fyrri hálfleiknum, en það gerði Rafael Alexandre Romao Victor eftir rúman stundarfjórðung. Hann var svo aftur á ferðinni þegar rúmar 20 mínútur voru til leiksloka og kom Þór í 2-0. Aðeins þremur mínútum síðar bætti Ingimar Arnar Kristjánsson við þriðja markinu, síðan Egill Orri Arnarsson því fjórða og Aron Ingi Magnússon því fimmta í uppbótartíma áður en gestirnir skoruðu sitt eina mark. Mark Egils Orra, sem fæddur er 2008, var hans fyrsta í viðurkenndum meistaraflokksleik í móti á vegum KSÍ, en þetta var hans fjórði leikur á þeim vettvangi. 

Þór - Stjarnan 5-1 (1-0)

  • 1-0 Rafael Alexandre Romao Victor (17’).
  • 2-0 Rafael Alexandre Romao Victor (68’).
  • 3-0 Ingimar Arnar Kristjánsson (71’).
  • 4-0 Egill Orri Arnarsson (81’).
  • 5-0 Aron Ingi Magnússon (90+3’)
  • 5-1 Elvar Máni Guðmundsson (90+3’)*

  • Leikskýrslan (ksi.is)

Þórsarar eru því á toppi riðils 3 í A-deild karla með sex stig, eins og KR.

Næst

  • Mót: Lengjubikar karla, A-deild, riðill 3
  • Leikur: HK - Þór
  • Staður: Kórinn
  • Dagur: Laugardagur 24. febrúar
  • Tími: 15:00