Knattspyrna: Leikur Þórs og Völsungs færður

Þór og Völsungur mætast í A-deild Kjarnafæðimótsins í Boganum í kvöld kl. 18:15. Vakin er athygli á breyttum leikstað og leikdegi. 

Leikurinn var upphaflega settur á Húsavíkurvöll á morgun, laugardag, en honum hefur nú verið flýtt og færður til Akureyrar. 

Þórsarar hafa spilað þrjá leiki til þessa í B-riðli A-deildar og unnið þá alla, eru með níu stig á toppnum. Völsungur hefur spilað tvo leiki, vann Samherja örugglega í fyrsta leik, en tapaði síðan fyrir KA2.