Knattspyrna: Þór tekur á móti Stjörnunni í Boganum

Þórsarar spila sinn annan leik í Lengjubikarnum í knattspyrnu þetta árið þegar þeir taka á móti liði Stjörnunnar í Boganum í dag kl. 15.

Þór vann öruggan 5-1 sigur á Njarðvík á útivelli um liðna helgi. Leikurinn verður sá fyrsti hjá Stjörnunni í Lengjubikarnum þetta árið.

  • Mót: Lengjubikar karla, A-deild, riðill 3
  • Leikur: Þór - Stjarnan
  • Staður: Boginn
  • Dagur: Sunnudagur 18. febrúar
  • Tími: 15:00