Knattspyrna: Þór/KA og Þór/KA2 mætast í kvöld

Lokaleikur kvennadeildar Kjarnafæðimótsins verður spilaður í Boganum í kvöld og er innbyrðis leikur Þór/KA-liðanna.

Bæði lið hafa unnið alla sína leiki hingað til, eru með níu stig úr þremur leikjum eftir sigra gegn FHL, Tindastóli og Völsungi. Leikurinn í kvöld fer fram í Boganum og hefst kl. 19:15.