Knattspyrna: Þór/KA2 mætir Völsungi í Boganum í dag

Þór/KA2 og Völsungur mætast í kvennadeild Kjarnafæðismótsins í dag. Leikurinn fer fram í Boganum og hefst kl. 15.

Völsungur hefur leikið þrjá leiki í Kjarnafæðimótinu, unnið einn og tapað tveimur. Þór/KA2 hefur spilað tvo leiki og unnið báða. Úrslit leikja og stöðuna í kvennadeild Kjarnafæðimótsins má finna á síðu KDN - sjá hér. Það má reyndar búast við mörgum leikmönnum úr röðum Þórs/KA í þessum leik því Húsvíkingar hafa þurft að fá lánaða leikmenn til að manna lið sitt í mótinu.