Knattspyrna: Þór/KA2 með sigur gegn FHL

Þessar spiluðu fyrri hálfleikinn í dag. Emelía Ósk Krüger, Bríet Jóhannsdóttir, Amalía Árnadóttir, S…
Þessar spiluðu fyrri hálfleikinn í dag. Emelía Ósk Krüger, Bríet Jóhannsdóttir, Amalía Árnadóttir, Sandra María Jessen og Margrét Árnadóttir.

Þór/KA2 vann lið FHL í kvennadeild Kjarnafæðimótsins í dag, 7-1.

Þór/KA2 komst í 3-0 í fyrri hálfleik, en gestirnir minnkuðu muninn rétt fyrir leikhlé, en okkar stelpur bættu við fjórum mörkum í seinni hálfleiknum.

Þór/KA2 - FHL 7-1 (3-1)

  • 1-0 Karen María Sigurgeirsdóttir (9')
  • 2-0 Agnes Birta Stefánsdóttir (26')
  • 3-0 Sandra María Jessen (36').
  • 3-1 Björg Gunnlaugsdóttir (44').
  • 4-1 Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (26').
  • 5-1 Sonja Björg Sigurðardóttir (66').
  • 6-1 Sonja Björg Sigurðardóttir (69').
  • 7-1 Ísey Ragnarsdóttir (78')


Þessar spiluðu seinni hálfleikinn. Amanda Lihv, Hildur Anna Birgisdóttir, Sonja Björg Sigurðardóttir, Ísey Ragnarsdóttir og Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir. Sonja Björg skoraði tvö mörk, Ísey eitt og Amanda átti stoðsendingu í seinna marki Sonju.

Næsti leikur hjá Þór/KA2 var ráðgerður næsta miðvikudag á KA-vellinum, en hann verður færður yfir á laugardag og spilaður í Boganum. Tímasetning auglýst síðar. Þetta var annar leikurinn sem Þór/KA2 spilar í mótinu og annar sigurinn.