Knattspyrna: ÞórKA2 tekur á móti FHL í Kjarnafæðimótinu

Þór/KA2 tekur á móti liði FHL í kvennadeild Kjarnafæðimótsins í dag kl. 15.

Þór/KA2 hefur aðeins leikið einn leik til þessa, sem var sigur á Tindastóli í desember. FHL hefur spilað tvo leiki og tapað báðum, fyrst gegn Þór/KA og síðan Tindastóli.

Leikurinn fer fram í Boganum og hefst kl. 15.