Knattspyrna: Þórsarar mæta HK í Kórnum í dag

Þórsarar leika sinn þriðja leik í riðli 3 í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í dag kl. 15 þegar þeir mæta HK í Kórnum í Kópavogi.

Þór hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í mótinu, fyrst 5-1 útisigur gegn Njarðvíkingum og svo 5-1 heimasigur gegn Stjörnunni og er á toppi riðilsins með sex stig og markatöluna 10-2. HK hefur lokið þremur leikjum og aðeins náð í eitt stig, en liðið gerði jafntefli við Njarðvík og tapaði gegn KR og Fjölni.

Næst

  • Mót: Lengjubikar, A-deild karla, riðill 3
  • Leikur: HK - Þór
  • Staður: Kórinn
  • Dagur: Laugardagur 24. febrúar
  • Tími: 15:00