Knattspyrna: Þrír öruggir sigrar í Kjarnafæðimótinu

Þrír af dómurum leikjanna í gær, Sveinn Þórður Þórðarson, Birgir Þór Þrastarson og Árni Gunnar Eller…
Þrír af dómurum leikjanna í gær, Sveinn Þórður Þórðarson, Birgir Þór Þrastarson og Árni Gunnar Ellertsson. Mynd: KDN.is.

Tvo lið frá Þór og eitt frá Þór/KA spiluðu í Kjarnafæðimótinu í gær og unnu okkar lið öll örugga sigra. Þór/KA mætti FHL eða blöndu úr FHL og Einherja, Þór2 mætti sameiginlegu liði Skagfirðinga og Húnvetninga úr Kormáki, Hvöt og Tindastóli og í síðasta leik kvöldsins mættust Þór3 og KA4 í B-deild Kjarnafæðismótsins.

Alls voru skoruð 19 mörk í þessum þremur leikjum, þar af komu 18 frá okkar liðum. Þór/KA vann 7-0 sigur á gestunum að austan og bar helst til tíðinda að Hulda Ósk Jónsdóttir skoraði þar þrennu í fyrri hálfleiknum, á rúmum 20 mínútum. Í A-riðli A-deildar karla voru það strákarnir í Þór2, eða A-liði 2. flokks, sem lentu undir, en svöruðu með sjö mörkum. Lokaleikurinn var í B-deild karla þar sem Þór3 vann öruggan sigur á KA4.

Sjá einnig umfjöllun og myndir á vef KDN.

Kjarnafæðimótið - kvennadeild

Þór/KA - FHL 7-0 (4-0)

  • 1-0 - Hulda Ósk Jónsdóttir (v)(13')
  • 2-0 - Karen María Sigurgeirsdóttir (17')
  • 3-0 - Hulda Ósk Jónsdóttir (29')
  • 4-0 - Hulda Ósk Jónsdóttir (36')
  • 5-0 - Sandra María Jessen (63')
  • 6-0 - Margrét Árnadóttir (69')
  • 7-0 - Agnes Birta Stefánsdóttir (77')

Kjarnafæðímótið A-deild karla, A-riðill

Þór2 - KHT 7-1 (2-1)

  • 0-1 - Intvi Rafn Ingvarsson (17')
  • 1-1 - Einar Freyr Halldórsson (35')
  • 2-1 - Ingimar Arnar Kristjánsson (45')
  • 3-1 - Ingimar Arnar Kristjánsson (51')
  • 4-1 - Kristinn Bjarni Andrason (60')
  • 5-1 - Kristinn Bjarni Andrason (75')
  • 6-1 - Atli Þór Sindrason (85')
  • 7-1 - Egill Orri Arnarsson (88')

Kjarnafæðimótið B-deild karla

Þór3 - KA4 4-0 (2-0)

  • 1-0 - Bjarmi Már Eiríksson (15')
  • 2-0 - Ingþór Bjarki Brynjólfsson (18')
  • 3-0 - Tómas Bjarni Baldursson (70')
  • 4-0 - Viktor Smári Sveinsson (83')

Næst

  • Mót: Kjarnafæðimótið, A-deild karla, B-riðill
  • Leikur: Samherjar - Þór
  • Staður: Boginn
  • Dagur: Miðvikudagur 10. janúar
  • Tími: 18:00