Knattspyrna: Þrjár frá Þór/KA með U19 og fjórar með U15

Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 landsliðs kvenna í knattspyrnu, valdi fyrir nokkru 18 leikmenn fyrir tvo æfingaleiki gegn Portúgal og Finnlandi sem fram fara á næstu dögum.

Leikirnir eru liður í undirbúningi U19 landsliðsins fyrir undankeppni EM í vor. Leikið er í Portúgal. Í hópnum sem spilar æfingaleikina núna í janúar eru þrjár frá Þór/KA, þær Iðunn Rán Gunnarsdóttir, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir og Steingerður Snorradóttir.

Þrjár í U15

Magnús Örn Helgason, þjálfari U15 landsliðs kvenna í knattspyrnu, hefur valið hóp sem kemur saman til æfinga í Miðgarði í Garðabæ dagana 23.-25. janúar. Í þessum hópi eru fjórar frá Þór/KA, þær Aníta Ingvarsdóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir og Ragnheiður Sara Steindórsdóttir.