Knattspyrna: Tveir leikir hjá okkar liðum í dag

Áfram verður leikið í Kjarnafæðimótinu í knattspyrnu í dag. Lið 2. flokks Þórs og meistaraflokkur Þórs/KA verða í eldlínunni í dag. Strákarnir spila kl. 13 og stelpurnar kl. 17, en í millitíðinni mætast FHL og Tindastóll í kvennadeildinni.

Sunnudagur 14. janúar kl. 13
A-deild karla, A-riðill
Þór2 - KFA

Sunnudagur 14. janúar kl. 17
Kvennadeild
Völsungur - Þór/KA