Pétur Orri með U17 til Finnlands

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið leikmannahóp til þátttöku í tveimur æfingaleikjum gegn Finnum í Finnlandi dagana 26. febrúar – 2. mars næstkomandi.

Í hópnum er Þórsarinn Pétur Orri Arnarson. Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Pétur Orri hefur leikið átta landsleiki fyrir yngri landslið Íslands en hann er á yngsta ári í 2.flokki og hefur verið hluti af æfingahópi meistaraflokks í vetur.

Óskum Pétri til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu.